Hjálpum börnum heimsins
Kiwanisklúbburinn Þyrill- Þyrill 40 ára
02. desember 2009

Þyrill 40 ára

 
Kiwanisklúbburinn Þyrill verður 40 ára á starfsárinu, en fullgildardagurinn var 26. janúar 1970.   Skipuð hefur verið sérstök afmælisnefnd undir formennsku Ólafs Inga Jónssonar, fyrsta forseta klúbbins  sem vinnur að því að undirbúa afmælishald með myndarlegum hætti

   Ákveðið hefur verið að  minnast afmælisins á fundi 1. febrúar  2010 en sjálf afmælishátíðin fer fram  með hækkandi sól  þ.e. 15. maí  eða  þá verða liðin full 40 ár frá  2. maí 1970,  eftirminnilegum vígsludegi  Þyrils.   Nánar verður þetta afmælishald kynnt  er þar að kemur , en segja má að góður hugur sé í klúbbfélögum  að gera þetta afmælisár  að  jákvæðu  átaki  til framdráttar  framtíðarstarfinu í klúbbnum.

Til baka