
Fréttapistill Þyrills
Fækkun félaga í klúbbunum hefur verið áhyggjuefni , sem Þyrill hefur ekki farið varhluta af . Gleðileg breyting hefur á orðið, því nýr félagi, Sæmundur Ó. Ólason, ver tekinn í klúbbinn í janúar. Í okt. s.l. gekk einnig í raðir Þyrils fyrrum félagi í Drangey, Ingimar Hóm Ellertsson, sem flutt hefur til Akraness. Þyrilsfélagar væta góðs af þessum liðsauka, sem færir félagatöluna aftur upp í 30, eins og var í upphafi þó vanti verulega í það að ná upp í það sem var þegar félagar voru flestir. Vonandi verður það á 5. áratugnum!
GÓÐUR GANGUR Í FLUGSELDASÖLU
Lengst af starfstíma Þyrils hefur flugeldasala verið helsta fjáröflun styrktarsjóðs og sú eina síðstu ár. Árangur hefur yfirleitt verið það góður að klúbburinn hefur latið af hendi rakkna myndarlegan stuðning til góða málaefna í bænum. Síðustu ár hefur tekist góð samvinna við Knattspyrnufélaga ÍA um söluna og hafa liðsmenn beggja unnið ötullega að því að ná sem mestum ávinningi, sem skipst hefur jafnt á milli aðila . Um síðustu áramot kom í hlut Þyrils um kr. 800 þús.. Flugeldanefnd klúbbsins hefur staðið mjög vel að þessu verki fyrir klúbbsins hönd.
STUÐNINGUR STYRKTARSJÓÐS
Eins og jafnan áður veitti klúbburinn í desember s.l. styrki til velferðarmála, að þessu sinni til velferðarmála vegna fjárhagslegra erfiðleika hjá mörgum fjölskyldum , alls kr. 400 þús., sem skiptist jafnt milli Mæðrastyrksnefndar og Styrktarsjóðs Akraneskirkju.
Þyrilsfélagar hafa haft þann hátt á að leggja til hliðar hluta af fjáröflun styrktarsjóðs og veita á 5 og 10 ára afmælum klúbbsins hærri framlög í þágu tiltekinna menningar- og mannúðarmála. Að tillögu styrktarnefndar hefur klúbburinn þegar ákveðið að veita slíka styrki í tilefni 40 ára afmælisins, sem ekki verður nánar greint frá hér , en óhætt mun að fullyrða að þeira verða rausnarlegir, eins og koma mun í ljós við afhendingu þeirra til viðkomandi aðila á aðalfundi 10. maí n.k..
LÍFLEGIR FUNDIR
Mæting á fundi hefur verið með betra móti í vetur og hefur sú nýbreyttni verið tekin upp að beita rafrænum boðskiptum til félaga í sambandi við fundi og viðburði . Einnig hefur verið unnið að því að bæta "heimasíðu" klúbbsins hjá Kiwanis.is og lofar þetta góðu. Þegar hafa fimm ágætir fyrirlesarar verið á fundum á starfsárinu , sem fjallað hafa um ólík efni, allt frá líkamsrækt til fyrningarleiðar. Þess má ennfremur geta að umdæmisstjóri, Óskar Guðjónsson ásamt Atla Þóirssyni, umdæmisféhriði, mættu á fund 1. mars og var það hin gagnlegasta heimsókn.
Tveggja fund er ennfremur ástæða til að geta. Árlegur jólafundur fór fram 12. des. í nýju veitingahúsi "Gamla kaupfélaginu" hér í bæ.
Venja er að bjóða eiginkonum félaga og látinna félaga til þessa fagnaðar og sátu hann 24 félagar og alls 31 gestur þ.á. m. Jakob Marinósson, svæðisstjóri , sem heiðraði klúbbinn með nærveru sinni og færði í ávarp sínu fram kveðjur og árnaðaróskir. Sérstakir gestur á jólafundinum var hinn kunni sagnaritari og bókaútgefandi, Bragi Þórðarson ásamt eginkonu, Elínu Þorvaldsdóttur, og flutti hann frásöguþátt úr nýútkominni bók sinni.
Á Þorrafund 1. febrúar komu í heimsókn 11 félagar frá Mosfelli og 2 frá Drangey. Við tilhlýðilegar veitingar fór mjög vel á með kiwanismönnum þessara þriggja klúbba . Ólafur Ingi Jónsson, fyrsti forseti Þyrils, nýtti tækifærið og rakti nokkra viðburði í 40 ára sögu Þyrils og greindi frá tildrögum að stofnun hans á sínum tíma , en hann var frumkvöðull að því hér heima fyrir. Ennfremur fól forseti undirrituðum að lesa upp bréf dags. 7. janúar (ísl. þýðing) frá heimsforseta Kiwanishreyfingarinnar, Poul Palazzola, sem hafði að geyma heilóskir, þakkir og hvatningu til félaga í Kiwanisklúbbnum Þyrli í tilefni 40 ára afmælisins.
AFMÆLISHÁTÍÐ
Þessu fréttayfirliti frá Þyrli skal lokið með því að geta þess að nú er unnið að fullum krafti við að undirbúa 40 ára afmælishátíð , sem verður laugardaginn 15. maí n.k. eins og áður er getið og kappkostað að hún verði hin veglegasta að öllu leyti.
Akranesi, 15. apríl 2010
Guðmundur Vésteinsson
-ritari Kiwaniskl. Þyrils