Hjálpum börnum heimsins

Um Þyril

 

Kíwanisklúbburinn
  ÞYRILL Akranesi
       K07974


Móðurklúbbur:       Hekla Reykjavík
Heimilisfang :         Pósthólf 49 Akranesi
Veffang :                 http://thyrill.kiwanis.is
Svæði:                    Eddu –svæði (K3901)
Umdæmi :              Umdæmi Ísland – Færeyjar
Alþjóðatengsli :     Kiwanis International-
                                European Fedaration (KIEF)
Stofndagur :           3. nóv.1969
Fullgildingard :      26. janúar 1970
Klúbbnúmer :        EO 081    K07974
Kennitala :             560480-0249

Upphaf kíwanisstarfs á Akranesi.

Byrjun á starfsemi Kíwanisklúbbsins Þyrils er sú, að 3. nóv. 1969 er haldinn fundur á Akranesi að tilhlutan Kíwanisklúbbsins Heklu í Reykjavík., þar sem 16 menn höfðu skrifað sig sem áhugamenn um stofnun Kíwanisklúbbs á Akranesi. Á fundi þessum mættu fjórir menn úr stjórn og félagsmálanefnd  Heklu  og flestir þeir sem höfðu skrifað sig á listann. Klúbburinn var þannig komin í aðlögun  og var honum valið nafnið Þyrill, einnig var kosin bráðabirgðastjórn og voru kosnir: Forseti Ólafur I. Jónsson, ritari Örnólfur Þorleifsson og gjaldkeri Einar J. Ólafsson.

Síðan eru fundir haldnir hálfsmánarðlega  á mánudögum kl. 19.30 og unnið er að fjölgun  félaga í klúbbnum.Þegar klúbburinn er formlega stofnaður 26.janúar 1970, eru klúbbfélagar orðnir 30.  Á stofnfundin komu 18 félagar frá Kíwanisklúbbunum  Heklu og Kötlu í Reykjavík. Klúbbnum voru nú sett lög og stjórn formlega kosin, enn hana skipa: Forseti Ólafur I. Jónsson, varaforseti Jón Runólfsson, ritari Örnólfur Þorleifsson, gjaldkeri Einar J. Ólafsson, vararitari Helgi Daníelsson, varagjaldkeri Svavar Sigurðsson, meðstjórnendur Þórir Marinósson, Guðmundur Sigurðsson og Bjarni Árnason.

Fundir voru nú  haldnir á hverjum mánudag, almennur fundur hálfsmánaðarlega, en stjórnar og nefndarfundir hinn mánudaginn. Fengnir voru fyrirlesarar á suma almennu fundina þar á meðal bæjarstjóri á Akranesi, yfirlæknir sjúkrahússins og fleiri. Þá var haldið áfram að vinna að fjölgun félaga og eru félagar nú ornir 35. Vígsluhátíð sína hélt svo klúbburinn 2. maí 1970 og fór hún mjög vel fram og virtust samkomugestir, sem voru um 150, skemmta sér vel. Einar A. Jónsson afhenti klúbbnum fullgildingarskjal og kveðjur voru fluttar frá bæjarstjórn Akraness, þjónustuklúbbum starfandi á Akranesi og öðrum Kjíwanisklúbbum á landinu og færðu þeir klúbbnum okkar margar og veglegar gjafir sem við erum sérstaklega þakklátir fyrir.

Fjáröflun fór klúbburinn í tvisvar sinnum á síðast liðnum vetri. Á konudaginn 23. febrúar seldu félagar blóm, og gaf það ágætar tekjur. Og  13. mars var efnt til kútmaga kvölds, þar sem mættir voru um 100 karlmenn og tókst sú skemmtun vel,bæði fjárhagslega og á annan hátt og verður reynt að halda svona skemmtun árlega hér eftir. Í gjafasjóði klúbbsins eru nú um 50 þús. Krónur, en ekki hefur enn þá verið ákveðið hvernig þeim skuli varið, en sú ákvörðun verður væntanlega tekin fljótlega.

Þann 1. júní var haldinn fyrsti aðalfundur klúbbsins  og kosin stjórn fyrir næsta starfsár, en hana skipa: Forseti  Svavar Sigurðsson, varaforseti  Ásgeir Guðmundsson, 
ritari  Bjarni Árnason, gjaldkeri  Þröstur Stefánsson, vararitari  Helgi Sigurðsson, varagjaldkeri  Ásmundur Ólafsson, meðstjórnendur  Hinrik Haraldsson,  Leifur Ásgrímsson  og Torben Asp.

Klúbburinn hefur haldið 16 almenna fundi og 14 stjórnarfundi  það sem af er starfsárinu  og einnig tók klúbburinn þátt í “útilegufundi”,  sem haldin var í Húsafellsskógi í sumar.  Fastir klúbbfundir lágu niðri yfir sumarmánuðina  júní, júlí og ágúst, en nú verður farið af stað af fullum krafti  aftur og  fyrsti almenni fundurinn er næstkomandi mánudag  þann  7. sept. 1970.

Ólafur Ingi Jónsson
fyrsti forseti Þyrils.